Skipta íþróttir máli?
Ráðstefna Háskóla Íslands og Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands um stöðu íþrótta í íslensku samfélagi verður haldin miðvikudaginn 28. nóvember nk. klukkan kl. 13.00-16.30. Ráðstefnan verður í Hátíðarsal Háskóla Íslands
og er þátttaka öllum að kostnaðarlausu.Markmið með þessu samstarfsverkefni ÍSÍ og HÍ er að efla tengsl og samstarf mismunandi fræðasviða Háskóla Íslands og Íþróttahreyfingarinnar. Tilgangurinn er að vekja athygli á hvernig margþætti vísinda- kennslu og nýsköpunarstarf Háskóli Íslands getur styrkt starfsemi og stöðu íþrótta í íslensku samfélagi.Á ráðstefnunni verður tekið á mörgum málefni sem eru oft í umræðunni og margir hafa skoðanir á; Á að getuskipta börnum í íþróttum? Skiptir félagslegt umhverfi máli í íþróttum? Eru íþróttir menning? Er afrekshugsun þjálfuð í nægilegum mæli? Svör við þessum spurningum og mörgum öðrum verður leitast við að svara miðvikudaginn 28. nóvember. Ráðstefna sem þeir sem áhuga hafa á málefninu ættu ekki að missa af.Þrátt fyrir að þátttakan sé öllum að kostnaðarlausu þá verður að skrá sig á
skraning@isi.isfyrir hádegi mánudaginn 26. nóvember.
Dagskrá:
13.00 Setning
Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands
Almennt íþróttastarf
Á að banna getuskiptingu barna í hópíþróttum?
Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor við Íþrótta,- tómstunda- og þroskaþjálfadeild HÍ
Félagslegt umhverfi árangurs í íþróttum: Ný sóknarfæri?
Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur
Sjúk sál í slöppum líkama – Nokkrar menningarsögulegar hugrenningar um úrkynjun og íþróttir
Dr. Benedikt Hjartarson, aðjúnkt í almennri bókmenntafræði og menningarfræði við HÍ
Kaffihlé 14.15-14.30
14:30 Afreksíþróttir
Afreksíþróttir hagkvæmar!
Dr. Daði Kristófersson, dósent við Hagfræðideild HÍ
Svo bregðast krossbönd
Dr. Kristín Briem, dósent. námsbraut í sjúkraþjálfun við Heilbrigðisvísindasvið, HÍ
“Ég ætla að breyta íþróttinni minni” – þjálfun afrekshugarfars –
Sigurður Ragnar Eyjólfsson M.Sc. í íþróttasálfræði og A-landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu
Ytra umhverfi íþróttahreyfingarinnar
Ólafur Rafnsson forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands
Ráðstefnustjórar eru Erlingur Jóhannsson prófessor við HÍ, Ólafur Eiríksson sundmaður og hæstaréttarlögmaður, Sunna Gestdóttir, frjálsar íþróttir og doktorsnemi við HÍ og Hjördís Guðmundsdóttir verkefnisstjóri hjá ÍSÍ.
Related
This entry was posted
on 18/11/2012 at 01:50. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed.
You can leave a response, or trackback from your own site.
Posted in Uncategorized by Siggi Raggi