Feb 19
5
Hugarfar þeirra bestu – Nýtt námskeið Sigga Ragga fyrir íþróttafólk með metnað (22-23.febrúar í Kópavogi)
Hvernig nálgast þau bestu íþróttina sína? Hvaða leiðir fóru þau til að komast á toppinn? Hvernig er hugarfarið þeirra? Hvernig er hugarfarið þitt? Hvernig ferðu að því að bæta það?
Á námskeiðinu lærir þú:
- Hvernig þau bestu nálgast íþróttina sína
- Um þína persónulegu styrkleika og veikleika hugarfarslega
- Hvernig er best að setja sér markmið og búa til leiðir út frá þeim til að ná árangri
- Góð ráð til að efla sjálfstraust
- Hvernig er hægt að þróa með sér vaxtarhugarfar og þrautseigju
- Leiðir sem okkar besta íþróttafólk hefur farið til að ná árangri og hvernig þú getur tileinkað þér sömu aðferðir
- Hvað rannsóknir segja um hugarfar þeirra bestu
- Góð ráð frá þeim sem hafa náð í fremstu röð (góðir gestir koma í heimsókn, gefa af sér og svara spurningum)
Á námskeiðinu hittir þú íþróttafólk með metnað eins og þú til að ná langt. Úr verður umhverfi sem hvetur þig áfram í að ná langt í þinni íþrótt með sérstakri áherslu á að efla hugarfarið og læra af þeim sem hafa náð langt í sinni íþrótt.
Skráning er hafin með því að smella á þennan tengil: https://goo.gl/forms/kVGH3HhnSwDP3R6r1
Ef spurningar, (siggiraggi73@gmail.com). Takmarkaður þátttökufjöldi, fyrstur kemur fyrstur fær.
Verð: 29.900 kr.
Hvenær: Námskeiðið fer fram föstudaginn 22. febrúar kl 18:00-20:00 og laugardaginn 23.febrúar kl 13.00-17:00.
Hvar? Námskeiðið fer fram í sal EMDR stofunnar á 3.hæð í Vallakór 4, 203 Kópavogur (sama hús og Krónan í Kórahverfinu).
Fyrirlesari: Sigurður Ragnar Eyjólfsson (Siggi Raggi), hefur lokið við UEFA Pro þjálfaragráðu frá enska knattspyrnusambandinu. Hann þjálfaði A-landslið kvenna í knattspyrnu í 7 ár og fór tvisvar með liðið í lokakeppni EM, í seinna skiptið alla leið í 8-liða úrslit sem er besti árangur landsliðsins frá upphafi. Siggi Raggi hefur líka þjálfað A-landslið kvenna hjá Kína og kom þeim í lokakeppni HM.
Siggi Raggi var aðstoðarþjálfari hjá karlaliði Lilleström í norsku úrvalsdeildinni í 2 ár og hefur þjálfað í Pepsídeild karla í knattspyrnu. Hann er íþróttafræðingur að mennt og hefur lokið við mastersgráðu í íþróttasálfræði. Siggi Raggi er eftirsóttur fyrirlesari hjá fyrirtækjum, íþróttafélögum og skólum auk þess sem hann tekur íþróttafólk í ráðgjöf. Hann hefur lengi velt fyrir sér hvað þarf til að ná árangri og lesið ótal bækur, fræðigreinar og rannsóknir um afreksárangur íþróttafólks og nýtt þau fræði í þjálfun og ráðgjöf við íþróttafólk. Námskeiðið byggir á þessum fræðum.