Oct 14
1
Einstaklingsráðgjöf til íþróttafólks – Nýjung á siggiraggi.is
Ert þú metnaðarfullur íþróttamaður eða íþróttakona sem vilt vinna markvisst með hugarfarslega þætti til að hámarka árangurinn þinn eða til að stíga næsta skref í íþróttinni þinni?
Viltu ná í fremstu röð en einhver 1-2 hugarfarsleg atriði eru að hamla því að þú náir topp árangri?
Viltu einstaklingsráðgjöf sem er sérsaumuð að því hver þú ert og passar inn í prógrammið þitt?
Áttu við einhvers konar vandamál að etja sem eru að hamla þér við æfingar eða keppni?
Eða ertu góður en vilt verða ennþá betri í því sem þú ert að fást við?
Einstaklingsráðgjöf gæti verið málið fyrir þig.
Pantaðu tíma hjá mér og við hittumst og spjöllum og stefnum saman á að þú náir betri árangri í því sem þú ert að fást við.
Nokkur dæmi um efnisþætti sem ég hef verið að vinna með í einstaklingsráðgjöf:
- Að bæta sjálfstraust
- Að höndla streitu (stress)
- Markmiðssetning fyrir einstaklinginn til árangurs
- Ímyndunarþjálfun (sjónmyndaþjálfun, imagery)
- Styrkleikagreining
- Keppniskvíði/keppnisleiði
- Mótivering – áhugahvöt
- Andlegur undirbúningur fyrir æfingar og keppni
- Sjálfstal
- Ráðgjöf um næsta skref á íþróttaferlinum
- Ráðgjöf og aðstoð við að komast í skóla til Bandaríkjanna á skólastyrk í knattspyrnu
- Ráðgjöf um þjálfun
- og margt fleira því engir tveir einstaklingar eru nákvæmlega eins…
Siggi Raggi menntun:
- Íþróttafræðingur frá University of North Carolina at Greensboro
- Hef lokið Mastersnámi í æfinga- og íþróttasálfræði frá University of North Carolina at Greensboro
- UEFA Pro licence þjálfari frá enska knattspyrnusambandinu, hæsta stig menntunar í knattspyrnuþjálfun innan Evrópu
Siggi Raggi reynsla:
- 7 ár A-landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu (2007-2013)
- 12 ár fræðslustjóri Knattspyrnusambands Íslands (2002-2013)
- 1 ár þjálfari ÍBV í meistaraflokki karla í Pepsídeild 2014
- Atvinnumaður í knattspyrnu í næstefstu deild í Englandi og efstu deild í Belgíu (1999-2002)
- Ráðgjöf, kennsla og fyrirlestrahald hjá fyrirtækjum, íþróttafélögum, íþróttasamböndum, stjórnendum fyrirtækja o.s.frv. (2002-2014)
- Ráðgjöf til íþróttafólks á öllum aldri og öllum getustigum, í fjölmörgum mismunandi íþróttagreinum (2002-2014)
Hafðu samband og vinnum saman í að gera þig betri!
Siggi Raggi
siggiraggi73@gmail.com
848-8040