Vantar þinn hóp fyrirlestur eða vinnustofu? Viltu ná betri árangri í þinni vinnu eða íþrótt? Vantar þig ráðgjöf?
“Siggi Raggi hefur hjálpað mér að taka mörg skref í rétta átt til að komast á hærra stig í íþróttagrein minni. Hann er með mikla þekkingu og hefur reynslu af því að vinna með fólki sem þarf að standast allskyns áskoranir”
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir,
Íþróttamaður ársins 2017 og keppandi á LPGA mótaröðinni í golfi
“Sigurður Ragnar Eyjólfsson var fenginn til að vera gestafyrirlesari á starfsdegi hjá Landsbankanum. Um 750 starfsmenn bankans tóku þátt í starfsdeginum og var innlegg Sigurðar Ragnars allt í senn; hvetjandi, fróðlegt og skemmtilegt. Það sem kveikti áhuga okkar á að fá Sigurð Ragnar var fyrst og fremst vegna frábærs árangurs hans sem landsliðsþjálfara en einnig höfðum við heyrt af því að fyrirlestrar hans væru mjög góðir. Nálgun Sigurðar á því hvað þarf til að ná árangri og að tileinka sér hugarfar sigurvegarans náði vel í gegn til starfsmanna og á jafn vel við fyrirtækjarekstur eins og íþróttir. Fyrirlestur hans stóð undir væntingum og gott betur.”
Atli Atlason
Framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Landsbankans
“Sigurður Ragnar hélt fyrirlestur haustið 2009 á 200 manna ráðstefnu sem Verkefnastjórnunarfélag Íslands og MPM félagið stóðu fyrir. Fyrirlesturinn var mjög lifandi, fræðandi og áhugaverður í alla staði, stjórnendur og verkefnastjórar geta lært margt af Sigurði Ragnari í tengslum við markmiðasetningu, hvatningu og eftirfylgni í verkefnum eða í hópavinnu.”
Viktor Steinarsson, ráðstefnunefnd
“Sigurður Ragnar var meðal fyrirlesara á málfundi í Garðabæ sem bar heitið Frami og fjölskyldulíf . Rúmlega 200 konur sóttu fundinn sem haldinn var í því skyni að hvetja konur til þess að láta til sín taka en standa ekki aðgerðarlausar á hliðarlínunni.
Frábær árangur Sigurðar við þjálfun kvennalandsliðsins í knattspyrnu var það sem kveikti áhuga okkar og það er að óhætt að segja að Sigurður stóð undir væntingum okkar og gott betur. Fyrirlesturinn var bæði fróðlegur, skemmtilegur og hvetjandi og ýtti við mörgum kvennanna á fundinum eins og fram kom í umsögn þeirra um fyrirlesturinn”.
Gullveig Sæmundsdóttir, blaðamaður
„Fyrirlestrar Sigurðar Ragnars voru skipulagðir, vel unnir og skemmtilegir. Auk þess að vera fróðlegir og gagnlegir bæði knattspyrnumönnum og þjálfurum. Við leggjum mikla áherslu á að bæta stöðugt hugarfar knattspyrnumanna Njarðvíkur þannig að þeir nái sem bestum árangri. Fyrirlestrarnir voru mikilvægur þáttur á þeirri leið. Aðalþjálfari yngri flokka sagði nokkru eftir fyrirlestrana að hann tæki eftir breytingu á hegðun þjálfara og iðkenda eftir fyrirlestrana. Hann sagði ennfremur að efni fyrirlestrana ætti eftir að hafa áhrif á félagið langt umfram það sem við gerðum okkur grein fyrir“.
Halldór Rósmundur Guðjónsson,
Formaður unglingaráðs knattspyrnudeildar Njarðvíkur
“Siggi Raggi hélt fyrirlestur um hvað þarf til að ná árangri og hugarfar sigurvegarans á æfingahelgi hjá afrekskylfingum Golfsambands Íslands. Eftir fyrirlesturinn voru allir meira sannfærðir um hvað þarf til að verða afreksmaður í íþróttum“.
Karl Ómar Karlsson, þjálfari hjá Golfsambandi Íslands
Ánægðir viðskiptavinir:
You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed.
Both comments and pings are currently closed.Comments are closed.
Posted on: Saturday, April 24th, 2010 at 20:54