“Það er einhver að reyna að ná í þig frá Kína!”

Hvernig var að þjálfa fótbolta í Kína?  Þetta er spurning sem ég hef mjög oft fengið síðan ég flutti heim til Íslands.  Í stuttu máli var það mjög skemmtilegt og ótrúleg lífsreynsla en ég hef aldrei gefið mér tíma til að skrifa upp ferðasöguna um þetta ævintýri.  Mig langar að deila með ykkur þessu ævintýri og mun því skrifa ferðasöguna upp hér í nokkrum hlutum á næstunni.  Vonandi hafa einhverjir gaman af að lesa hana þó hún sé fyrst og fremst skrifuð upp fyrir mig sjálfan áður en sagan gleymist.

Skömmu fyrir jól 2016 fór ég að heilsa upp á gömlu samstarfsfélaga mína hjá KSÍ.  Einn þeirra, Þorvaldur Ingimundarson (maður sem myndast ótrúlega vel) sagði mér að einhver frá Kína væri að reyna að ná í mig.  Ég kannaðist ekki við að þekkja neinn í Kína þó að ég hafði reyndar farið í starfsviðtal þar ári áður fyrir starf A-landsliðsþjálfara kvenna en ekki fengið starfið.  En jú það kom í ljós að það var kínverji að reyna að ná í mig og hann spurði hvort ég hefði áhuga á að þjálfa lið Jiangsu Suning í Kína.  Þar sem ég var atvinnulaus eftir að hafa hætt störfum hjá Lilleström í norsku úrvalsdeildinni með Rúnari Kristinssyni þá var þetta tækifæri sem var þess vert að skoða.

Í byrjun janúar 2017 hringdi ég í Daða Rafnsson fyrrum yfirþjálfara Breiðabliks og sagði við hann “Daði þetta verður mjög skrýtið símtal.  Ertu til í að flytja með mér til Kína að þjálfa og þú hefur 1 dag til að svara”.  Daði var nýbúinn að frétta að hann ætti von á barni.  Stuttu seinna voru ég og Daði komnir í flugvél til Kína, þar sem við fórum í starfsviðtal og samningaviðræður í borginni Nanjing í einum af 5 höfuðstöðvum Suning fyrirtækisins.  Allt fór fram í gegnum túlk.  Ég og Daði áttuðum okkur ekki alveg á hvað þetta var stórt fyrr en yfirmaðurinn sagði að við gætum ekki unnið fyrir Suning nema að fara fyrst í kynningu á starfsemi Suning sem allt starfsfólk fyrirtækisins þarf að fara í gegnum.  Við fórum því inn í risastóra byggingu stutt frá þar sem við fengum kynningu á hversu viðamikil starfsemi Suning er og hve stórt fyrirtækið er.  Ég veit ekki hvor gapti meira ég eða Daði.  Við sáum m.a. að hjá Suning starfa yfir 200.000 manns og það er eitt af stærstu fyrirtækjum Kína.  Við áttuðum okkur líka betur á starfinu sem við vorum komnir í aðeins seinna þegar Fabio Capello var ráðinn þjálfari karlaliðsins.

Ég verð líka að viðurkenna að ég áttaði mig engan veginn á því heldur hvað Kína er fjölmennt land eða hve menningin og hugsunarhátturinn eru allt öðruvísi en á Vesturlöndum, það er eitthvað sem ég átti eftir að læra með tímanum.  Í samningaviðræðunum var það bara ég sem talaði því ég var head coach eða aðalþjálfarinn.  Þannig spurði yfirmaðurinn mig, er ásættanlegt fyrir aðstoðarþjálfarann þinn að fá x krónur í laun?  Ég sneri mér þá að Daða sem sat við hliðina á mér og spurði “ertu sáttur við það?  Daði sagði “já” og þá sagði ég “já hann er sáttur við það” við yfirmanninn.

Kína er mjög stéttaskipt land og mikið af venjum og siðum sem okkur finnast kannski skrýtnar en hafa tilgang þegar maður skilur betur hvað liggur að baki og hvernig þjóðfélagið er byggt upp.  En þarna gerðum við 2 ára samning, án umboðsmanns (ég las mér reyndar mjög mikið til um samningagerð í Kína áður en ég fór til Kína).

Við fórum svo og horfðum á æfingu hjá Jiangsu Suning kvennaliðinu.  Tempóið á æfingunni var lítið, en nokkrir leikmenn sem litu vel út.  Enginn leikmaður talaði ensku.  Það voru 5 markmenn á æfingunni og um 60 leikmenn á samningi.  Það voru nokkrir kínverskir þjálfarar að þjálfa liðið.  Allir leikmennirnir bjuggu á heimavist þar sem æfingavellirnir voru, þar var líka mötuneyti, íþróttasalur, sundlaug, lyftingasalur, frábær keppnisvöllur, gervigras og 8 æfingavellir.  Sumir leikmennirnir höfðu búið þarna í allt að 15 ár, tveir leikmenn saman í herbergi.

Í Kína er mjög mikill fókus á að æfa mikið.  Heilt yfir finnst mér kínverjar leggja alltof mikla áherslu á magn æfinga fremur en gæði.  Þannig er hinn týpíski kínverski þjálfari með tvær æfingar á dag í 2 tíma í senn.  Þá er ekki hægt að hanka þjálfarann á að hann láti leikmenn ekki æfa nógu mikið.  Þessu breyttum við fljótt í að æfa að jafnaði einu sinni á dag en á undirbúningstímabilinu æfðum við 2-3 daga í viku 2x á dag og hina dagana 1x en reyndum alltaf að hafa 1 frídag í viku.

Við höfðum stuttan tíma til að finna út hverjir væru 25 bestu leikmennirnir af þessum 60 því við vorum að fara beint í mót með liðið sem var haldið í borginni Kunming en þangað fara öll kínversku kvennaliðin í mánuð á hverju ári í æfingabúðir og spila mót sem er kallað National tournament þar sem spilað er í riðlum og svo 8, 4 liða og úrslitaleikur.

Við vorum eftir viku í Kína komnir til borgarinnar Kunming með liðið okkar en Kunming er í um 2.000 metra hæð ef ég man rétt og þar á svæðinu búa yfir 10 milljón manns.  Flugstöðin var ógnarstór og mjög mikið af fólki alls staðar.  Ég hafði aldrei áður farið í æfingabúðir í 1 mánuð.  Maturinn var alls ekki góður og kínverjarnir buðu upp á gos með matnum.  Ég átti eftir að kynnast að í Kína er sums staðar borðaðar engisprettur, hundar, sporðdrekar og alls konar matur ef mat skyldi kalla.  Áður en ég fór til Kína var það matur sem ég hafði mestar áhyggjur af og mengun.  Bæði var svo miklu betra en ég þorði að ímynda mér.  Leikmennirnir komu alltaf með heitt vatn á brúsa með sér á æfingu og því náði ég ekki að breyta.  Þær drukku ekki nóg vatn og vildu aldrei kalt vatn.  Það er rosalega erfitt að breyta menningu og stundum þarf maður að breyta sjálfum sér.  Það lærði ég í Kína.  Það góða við að öll liðin voru í Kunming var að að við gátum séð öll liðin í Kína spila og æfa á sama stað og sáum því hvernig liðið okkar var miðað við mótherjana.

Lið Jiangsu Suning hafði næstum fallið úr deildinni árið áður og lenti því í að spila umspilsleik um fall og var 1-0 undir í þeim leik en náðu að skora 2 mörk í uppbótartíma til að bjarga sér.  Leikmannahópur Jiangsu Suning var sá sami og árið áður en okkur var tilkynnt með mjög stuttum fyrirvara að við gætum fengið 2 útlendinga til liðs við okkur.  Fyrirvarinn var mjög stuttur og fyrir valinu urðu Gabi Zanotti miðjumaður og landsliðskona Brasilíu sem hafði spilað með Dalian, sem voru tvöfaldir meistarar frá árinu áður og Isabell Herlovsen, framherji sem við keyptum frá Lilleström og slógum við þar með norska félagsskiptametið.  Okkur var tjáð að við yrðum að vinna titilinn annars yrðum við reknir.  Markmiðin voru sett inn í samninginn og við áttuðum okkur strax á að okkar starf snerist um að vinna titil annars yrðum við reknir.  Þannig er það í Kína, ekki mikil þolinmæði.

Nánast enginn talaði ensku og nánast öll okkar samskipti við leikmenn þurftu að fara fram í gegnum túlk.  Við fengum frábæran túlk sem heitir Frank.  Stelpurnar kölluðu hann “Panga” sem þýðir bróðir Pan en Pan var kínverska eftirnafnið hans.  Það er gert af virðingu og í Kína er virðing mjög mikilvæg.  Frank sá um okkur útlendingana fjóra.  Hann var túlkur, bílstjórinn okkar, hjálpaði okkur að flytja inn í íbúðirnar okkar, fyllti meira að segja á símana okkar.  Hann vann óhemju mikið og eina vikuna hafði hann unnið yfir sig og varð hreinlega veikur og skipað að hvíla sig.  Þá réði klúbburinn bílstjóra og þá gat Frank einbeitt sér að því að vera túlkur.  Frank varð mér svo mikilvægur að ég heimtaði að hann kæmi með mér þegar ég tók við kínverska kvennalandsliðinu en meira um það seinna.

Svo þarna vorum við í æfingabúðunum í Kína, nýbúnir að læra nöfnin á 60 leikmönnum, ég og Daði og spurðum okkur sjálfa – Hvað erum við eiginlega búnir að koma okkur út í???  En ævintýrið okkar var bara rétt að byrja…

Mig hafði alltaf langað til Asíu en hafði aldrei komið þangað áður. Það var mögnuð upplifun að sjá Kínamúrinn, ótrúlegt mannvirki.
Lið Jiangsu Suning eftir deildarsigur á Kínameisturum Dalian.
Posted in Uncategorized by Siggi Raggi. No Comments

Fyrirlestrar sem eru í boði hjá Sigga Ragga – drífðu í að panta!

  1. Vertu þinn eiginn þjálfari – taktu ábyrgð á þinni þjálfun!

Þessi nýji og skemmtilegi pepp fyrirlestur fjallar um aðferðir sem fólk hefur notað til að verða framúrskarandi í því sem þau eru að fást við.  Getur þú notað sömu aðferðir í að verða betri í því sem þú ert að fást við í þínu starfi, námi eða áhugamáli?  Hvernig fóru Gylfi Sigurðsson og Sara Björk Gunnarsdóttir að því að verða best á landinu í fótbolta?  Hvernig fór Elín Metta Jensen að því að dúxa á inntökuprófinu í læknisfræði eftir að hafa ekki verið á meðal 50 efstu árið áður á sama prófi?  Tekin eru praktísk dæmi úr t.d. íþróttum, námi og tónlist sem er auðvelt að yfirfæra yfir á hvaða starf sem er.  Fyrirlesturinn kemur inn á mikilvægi þess að hafa vaxtarhugarfar fremur en fastmótað hugarfar og að þátttakendur taki sjálfir ábyrgð á sinni þjálfun, færni og framþróun.  Fyrirlestrinum er best að fylgja eftir með verkefnavinnu fyrir einstaka starfsmenn og hópavinnu þar sem starfsfólk svarar spurningum úr fyrirlestrinum og býr sér til einstaklingsmiðaða áætlun um hvernig það getur orðið betri í starfi og hvaða aðferðir það ætlar að nota til þess.

2. Markmiðssetning til árangurs

Flestir hafa sett sér markmið en það eru færri sem gera það markvisst eða gera það á þann hátt sem rannsóknir sýna fram á að það sé best að gera það.  Í þessum fyrirlestri kennir Siggi Raggi SMART markmiðssetningu þar sem þátttakendur læra aðferðir við að setja sér markmið sem eru studdar með rannsóknum.  Hver og einn þátttakandi útbýr einnig leið/aðferðir til að ná markmiðunum sínum.  Þátttakendur fá svo verkefnablöð til að fylla út þar sem þeir þurfa setja sér 3 einstaklingsmarkmið sem snúa að því að bæta færni þeirra sjálfra og frammistöðu í starfi.  Æskilegt er að fylgja fyrirlestrinum eftir með reglulegum einstaklingsfundum þar sem markmiðssetningunni er fylgt eftir og markmiðin aðlöguð.   Að lokum á fyrirtækið starfsmenn sem eru allir að vinna í að bæta færni sína á markvissan hátt, með plan sem fylgt er eftir og aðlagað.  Ef 30 starfsmenn eru í fyrirtækinu þá er hver og einn að vinna að 3 markmiðum um að bæta sig og starfsmenn því að vinna í 90 atriðum sem snúast um að bæta hæfni þeirra sem mun skila sér í betri frammistöðu, færni og árangri hjá fyrirtækinu.

3. Hvað þarf til að ná árangri?

Viltu verða góður, betri eða bestur í því sem þú ert að fást við? Fyrirlesturinn byggir á rannsóknum  afreksfólki en ekki síður persónulegri reynslu Sigga Ragga í að vinna með afreksfólki.  Notaðar eru dæmisögur til að gefa fólki góð ráð um hvað þarf til að árangri í því sem það er að fást við.  Þessi hvatningarfyrirlestur er aðlagaður að þeim hóp sem talað er við hverju sinni og getur því komið inn á marga mismunandi þætti eins og markmiðssetningu, metnað, áhugahvöt, daglegar venjur og fleira sem virkar sem hvatning til starfsfólksins. Siggi Raggi hefur haldið fyrirlestra um þetta efni í fyrirtækjum, skólum og félögum í mörg ár.    

4. Hvernig hjálpum við börnunum okkar að ná árangri? 

Fyrirlestur sem hentar vel fyrir foreldra, þjálfara, kennara og uppalendur.  Fyrirlesturinn kemur inn á þætti sem eru mikilvægir fyrir okkur að vita sem vilja styðja við börn og unglinga í íþróttum, námi eða öðrum áhugamálum.  Það eru þættir eins og mikilvægi stuðnings foreldra, fæðingardagsáhrif, hvað er góður kennari/þjálfari, mikilvægi vaxtarhugarfars umfram fastmótaðs hugarfars og fleira.

5. Liðsheild – Hvernig er best að búa til lið sem vill ná árangri?

Viltu búa til lið sem nær árangri?  Hvernig er best að fara að því?  Hvað einkennir góða liðsheild?  Hvernig getum við mótað umhverfi sem hjálpar liðinu að ná árangri?  Hvernig mótiverum við einstaklinga innan hópsins til að liðið nái betri árangri?  Hvernig búum við til liðsmenningu?  Hvað geta fyrirtæki lært af okkar bestu íþróttaliðum í gegnum tíðina?  Siggi Raggi bjó til kvennalandslið í knattspyrnu sem fór tvisvar í lokakeppni Evrópumótsins og fór þar í 8 liða úrslit sem er besti árangur liðsins frá upphafi.  Siggi Raggi þjálfaði líka kvennalandslið Kína og kom þeim í lokakeppni HM.  Í þessum fyrirlestri deilir Siggi Raggi þekkingu sinni og reynslusögum sem þjálfari afreksíþróttaliða á skemmtilegan hátt.

Um fyrirlesarann:  Sigurður Ragnar Eyjólfsson (Siggi Raggi) er íþróttafræðingur og lauk mastersgráðu í íþróttasálfræði frá University of North Carolina at Greensboro.  Hann hefur lokið við UEFA Pro þjálfaragráðu frá enska knattspyrnusambandinu.  Hann starfaði sem fræðslustjóri Knattspyrnusambands Íslands í 12 ár og mótaði þar þjálfaramenntun KSÍ.  Hann þjálfaði A-landslið kvenna í knattpsyrnu í 7 ár og kom þeim í lokakeppni Evrópumótsins tvisvar og fór með liðið í 8-liða úrslit árið 2013 sem er besti árangur landsliðsins frá upphafi.  Hann hefur þjálfað A-landslið kvenna hjá Kína í knattspyrnu og kom þeim í lokakeppni HM 2019.  Siggi Raggi hefur haldið hundruð fyrirlestra hjá fyrirtækjum, stofnunum skólum og íþróttafélögum.  Fyrirlestrar hans geta farið fram á hvort sem er íslensku eða ensku. 

Brot út fyrirlestri frá Sigga Ragga:

Hafðu samband, fáðu tilboð eða búum til fyrirlestur eða námskeið saman sem hentar þér og þínu fyrirtæki!

Siggi Raggi

Siggiraggi73@gmail.com

Sími 848-8040

www.siggiraggi.is

Posted in Uncategorized by Siggi Raggi. No Comments

Siggi Raggi með fyrirlestur á youtube

Í fyrsta skipti er núna hægt að sjá hluta úr fyrirlestri hjá mér á youtube – Hvað þarf til að ná árangri? Vantar fyrirtækið þitt eða hópinn þinn peppfyrirlestur? Viltu verða betri í því sem þú ert að fást við? Viltu læra af þeim aðferðum sem afreksíþróttafólk hefur beitt til að ná betri árangri sem starfsmaður í þínu fagi? Hafðu samband við Sigga Ragga á siggiraggi73@gmail.com eða í síma 848-8040 og pantið fyrirlestur. Smellið á myndbrotið.

Posted in Uncategorized by Siggi Raggi. No Comments

Hugarfar þeirra bestu – Nýtt námskeið Sigga Ragga fyrir íþróttafólk með metnað (22-23.febrúar í Kópavogi)

Hvernig nálgast þau bestu íþróttina sína?  Hvaða leiðir fóru þau til að komast á toppinn?  Hvernig er hugarfarið þeirra?  Hvernig er hugarfarið þitt? Hvernig ferðu að því að bæta það?

Á námskeiðinu lærir þú:

  • Hvernig þau bestu nálgast íþróttina sína
  • Um þína persónulegu styrkleika og veikleika hugarfarslega
  • Hvernig er best að setja sér markmið og búa til leiðir út frá þeim til að ná árangri
  • Góð ráð til að efla sjálfstraust
  • Hvernig er hægt að þróa með sér vaxtarhugarfar og þrautseigju
  • Leiðir sem okkar besta íþróttafólk hefur farið til að ná árangri og hvernig þú getur tileinkað þér sömu aðferðir
  • Hvað rannsóknir segja um hugarfar þeirra bestu
  • Góð ráð frá þeim sem hafa náð í fremstu röð (góðir gestir koma í heimsókn, gefa af sér og svara spurningum)

Á námskeiðinu hittir þú íþróttafólk með metnað eins og þú til að ná langt.  Úr verður umhverfi sem hvetur þig áfram í að ná langt í þinni íþrótt með sérstakri áherslu á að efla hugarfarið og læra af þeim sem hafa náð langt í sinni íþrótt.

Skráning er hafin með því að smella á þennan tengil: https://goo.gl/forms/kVGH3HhnSwDP3R6r1

Ef spurningar, (siggiraggi73@gmail.com).  Takmarkaður þátttökufjöldi, fyrstur kemur fyrstur fær.

Verð: 29.900 kr.

Hvenær: Námskeiðið fer fram föstudaginn 22. febrúar kl 18:00-20:00 og laugardaginn 23.febrúar kl 13.00-17:00. 

Hvar? Námskeiðið fer fram í sal EMDR stofunnar á 3.hæð í Vallakór 4, 203 Kópavogur (sama hús og Krónan í Kórahverfinu). 

Fyrirlesari: Sigurður Ragnar Eyjólfsson (Siggi Raggi), hefur lokið við UEFA Pro þjálfaragráðu frá enska knattspyrnusambandinu.  Hann þjálfaði A-landslið kvenna í knattspyrnu í 7 ár og fór tvisvar með liðið í lokakeppni EM, í seinna skiptið alla leið í 8-liða úrslit sem er besti árangur landsliðsins frá upphafi.  Siggi Raggi hefur líka þjálfað A-landslið kvenna hjá Kína og kom þeim í lokakeppni HM. 

Siggi Raggi var aðstoðarþjálfari hjá karlaliði Lilleström í norsku úrvalsdeildinni í 2 ár og hefur þjálfað í Pepsídeild karla í knattspyrnu.  Hann er íþróttafræðingur að mennt og hefur lokið við mastersgráðu í íþróttasálfræði.  Siggi Raggi er eftirsóttur fyrirlesari hjá fyrirtækjum, íþróttafélögum og skólum auk þess sem hann tekur íþróttafólk í ráðgjöf. Hann hefur lengi velt fyrir sér hvað þarf til að ná árangri og lesið ótal bækur, fræðigreinar og rannsóknir um afreksárangur íþróttafólks og nýtt þau fræði í þjálfun og ráðgjöf við íþróttafólk.  Námskeiðið byggir á þessum fræðum.

Vantar þig pepp fyrirlestur?

Vantar þig, liðið þitt eða hópinn þinn pepp fyrirlestur?

Er starfsmannadagur framundan eða teymisvinna?

Viltu skerpa á starfinu og hjálpa starfsfólkinu þínu að ná betri árangri?

Ertu stjórnandi sem vilt ná betri árangri í því sem þú ert að fást við?

Viltu læra af öðrum sem hafa náð framúrskarandi árangri á sínu sviði?

Hafðu samband og pantaðu fyrirlestur eða ráðgjöf í síma 848-8040 eða á www.siggiraggi73@gmail.com

Sigurður Ragnar Eyjólfsson var fræðslustjóri Knattspyrnusambands Íslands 2002-2014 og byggði þar upp þjálfaramenntun KSÍ, hann þjálfaði A-landslið kvenna hjá Íslandi og koma þeim í 2 lokakeppnir Evrópumótsins og þar á meðal í 8 liða úrslit EM 2013 sem er besti árangur í sögu landsliðsins.  Siggi Raggi þjálfaði A-landslið kvenna hjá Kína í knattspyrnu og kom þeim í lokakeppni Heimsmeistaramóts kvenna árið 2019.  Hann er íþróttafræðingur að mennt og með mastersgráðu í íþróttasálfræði.  Sigurður Ragnar lék sem atvinnumaður í knattspyrnu í Englandi í öllum deildum nema þeirri efstu og lék líka í belgísku úrvalsdeildinni.  Hann hefur starfað sem kennari á háskólastigi í íþróttasálfræði og verið ráðgjafi afreksíþróttafólks eins og Ólafíu Þórunnar Kristinsdóttur golfara á LPGA mótaröðinni en hún var valin íþróttamaður ársins 2017.  Sigurður Ragnar er vinsæll fyrirlesari hjá skólum, íþróttafélögum og fyrirtækjum.

Posted in Uncategorized by Siggi Raggi. No Comments